Brúðkaup

2026

UM OKKUR

Verið hjartanlega velkomin í brúðkaupsleiðarvísi Blik Studio og bestu þakkir fyrir að sýna okkur áhuga. Að baki standa Kim Klara og Daniel Þór og hófst ferðalagið okkar að Blik Studio með fyrsta brúðkaupinu sem við mynduðum saman. Það var sumarið 2018 og því stöndum við saman hér í dag. Við elskum að starfa saman við hjónavígslur, hvort sem það er að mynda saman, vinnsla ljósmynda eða samskipti við brúðhjónin okkar. Nálgun okkar er vönduð og á stóra deginum ykkar pössum við að láta lítið á okkur bera og reynum að falla í hópinn, svo þið og gestirnir upplifið nærveru okkar áreynslulausa og þægilega.

PAKKAR

Heill dagur

11 klst

  • einn ljósmyndari

  • fundur með brúðhjónum

  • 5 stk prentaðar ljósmyndir að ykkar vali í stærð 13x18cm

  • vefgallery

  • filmuvélin með í för

  • 600+ myndum skilað

Hálfur dagur

6 klst

  • einn ljósmyndari

  • fundur með brúðhjónum

  • vefgallery

  • 400+ myndum skilað

AUKA

Auka klukkustund 30.000 kr

Auka ljósmyndari 20.000 kr per klst

*Brúðkaup út á landi fá tilboð í ferðakosnað og gistingu ef þess þarf.

UNDIRBÚNINGUR

Til að fá sem mest úr brúðkaupsmyndunum er mikilvægt að huga að því hvar dagurinn byrjar. Undirbúningsferlið er mikilvægur partur af sögu dagsins.

Í dagsbyrjun er eftirvæntingin áþreifanleg og allir fara í sitt fínasta púss, sérvalið fyrir þennan dag. Þegar valin er staðsetning fyrir undirbúning er gott að vera meðvituð um heildarútlit rýmisins því það setur svip á útkomu heildaralbúmsins.

Þar sem við notumst að mestu við náttúrulega ljósgjafa er gott að hafa gluggabirtu enda spilar ljósið mikinn þátt í hvernig myndirnar koma út. Kertaljós og minni gluggabirta gefa oft sjarmerandi og rómantíska stemningu meðan stórir gluggar gefa mikið og fallegt ljós. Hvort um sig er afar fallegt en gefur gjörólíka útkomu.

Ef gist er á hóteli í lok dags er afar líklegt að herbergið henti í undirbúning og tilvalið að annað ykkar hafi sig til þar. Eins er hægt að leigja auka hótelherbergi undir slíkt.

SNJALL TÆKJALAUS ATHÖFN

Til þess að sýna sem best stemningu og tilfinningar á mynd, langar okkur að mæla með því að þið biðlið til gesta að sleppa sjálf myndatökum við athöfnina.

Okkur langar að sýna andlit gestanna ykkar en góð mynd getur auðveldlega misst gildi sitt ef sími eða jafnvel spjaldtölva hylur andlitið.

Gestirnir ykkar virða það glöð að þið hafið ráðið fagmenn til að skrásetja athöfnina á og þá geta gestir einbeitt sér að því að vera bara á staðnum og njóta stundarinnar.

MYNDATAKA

Algengast er að myndatakan fari fram utandyra. Oft er hægt að nýta umhverfið í kringum athafnarstað til myndatöku og staðir nýttir sem eru á leiðinni í veisluna.

Ef þið eigið börn er að sjálfsögðu velkomið að hafa þau með í myndatökunni og þá er best að aðili sem þekkir þau vel, sé með í för til að vera innan handar.

FAQs

Afhending ljósmynda?

1

Myndunum er að skilað á vefgallery sem tilvalið er að skoða hvar og hvenær sem er og deila með vinum og vandamönnum. Tímarammi vinnslu eru 4-6 vikur.


Fáum við fyrstu myndir?

2

Til að svala spennunni sendum við ykkur nokkrar myndir af hápunktum dagsins, 2-4 dögum eftir brúðkaupsdaginn.


Hvernig er greiðslufyrirkomulagið?

3

25% staðfestingargjald við bókun, sem er góð trygging bæði fyrir ykkur og okkur (gjaldið er óendurgreiðanlegt). 75% greiðast í vikunni fyrir brúðkaupið.


Fundur með ykkur.

4

Innifalið er fundur þar sem við kynnumst og förum yfir gang dagsins. Þetta er mikilvægt upp á að mynda tengsl enda viljum við að ykkur líður vel í kringum okkur og að þið getið verið þið sjálf. Það hefur áhrif á minninguna í kringum myndirnar og tilfinninguna sem vaknar þegar þið skoðið þær.


Lukkulega hefur það aldrei komið fyrir. Ef sú staða kemur upp þá getur alltaf annað okkar komið ef svo ólíkleg vildi vera að við hvorug mynum komast þá þekkjum fullt af frábærum brúðkaupsljósmyndurum sem við getum leitað til og aðstoðað ykkur að finna þann rétta.

Hvað ef þið forfallist?

5

Hafa Samband

Ef þú hefur áhuga á að fá okkur í daginn ykkar, vinsamlegast fylltu út eyðublaðið með nokkrum upplýsingum um daginn ykkar. Við förum yfir skilaboðin og höfum samband við þig eins fljótt og auðið er.

opnunartími: Mán-Fös

10:00 - 16:00