BLIK STUDIO

Brúðkaupslisti

A black-and-white photo of a bride and groom walking hand in hand down a street, with tall trees lining the background.

UM OKKUR

Verið hjartanlega velkomin í brúðkaupsleiðarvísi Blik Studio og bestu þakkir fyrir að sýna okkur áhuga. Að baki standa Kim Klara og Daniel Þór og hófst ferðalagið okkar að Blik Studio með fyrsta brúðkaupinu sem við mynduðum saman. Það var sumarið 2018 og því stöndum við saman hér í dag.

Við elskum að starfa saman við hjónavígslur, hvort sem það er að mynda saman, vinnsla ljósmynda eða samskipti við brúðhjónin okkar.

Nálgun okkar er vönduð og á stóra deginum ykkar pössum við að láta lítið á okkur bera og reynum að falla í hópinn, svo þið og gestirnir upplifið nærveru okkar áreynslulausa og þægilega.

UM OKKUR

Verið hjartanlega velkomin í brúðkaupsleiðarvísi Blik Studio og bestu þakkir fyrir að sýna okkur áhuga. Að baki standa Kim Klara og Daniel Þór og hófst ferðalagið okkar að Blik Studio með fyrsta brúðkaupinu sem við mynduðum saman. Það var sumarið 2018 og því stöndum við saman hér í dag.

Við elskum að starfa saman við hjónavígslur, hvort sem það er að mynda saman, vinnsla ljósmynda eða samskipti við brúðhjónin okkar.

Nálgun okkar er vönduð og á stóra deginum ykkar pössum við að láta lítið á okkur bera og reynum að falla í hópinn, svo þið og gestirnir upplifið nærveru okkar áreynslulausa og þægilega.

Black and white photo of a crowded indoor social gathering, with people sitting around tables and engaging in conversations, slightly blurred.

HEILL DAGUR

  • 11 klst af ljósmyndun

  • einn ljósmyndari

  • fundur með brúðhjónum

  • 5 prentaðar myndir í stærð 13x18cm

  • vefgallery

  • filmuvélin með í för

  • 500+ myndum skilað

480.000,-

A man and woman holding hands and walking on a dirt path outdoors, with a partly cloudy sky above.

HÁLFUR DAGUR

  • 6 klst af ljósmyndun

  • einn ljósmyndari

  • fundur með brúðhjónum

  • vefgallery

  • 300+ myndum skilað

350.000,-

  • auka klukkustund 30.000,- við dag

  • auka ljósmyndari 20.000,- hver klukkustund

  • brúðkaup úti á landi fá tilboð í ferðakostnað

UNDIRBÚNINGUR

A woman with dark, wavy hair is sitting while a person folds her hair, in a room with a wooden or textured wall in the background. The woman is wearing earrings, a pearl necklace, and a white camisole or dress. There is a person behind her, partially visible, that appears to be helping with her hair.

Til að fá sem mest úr brúðkaupsmyndunum er gott að huga að því hvar dagurinn byrjar, enda undirbúningsferlið mikilvægur partur af sögu dagsins.

Í dagsbyrjun er eftirvæntingin áþreifanleg og allir fara í sitt fínasta púss, sérvalið fyrir þennan dag. Þegar valin er staðsetning fyrir undirbúning er gott að vera meðvituð um heildarútlit rýmisins því það setur svip á útkomu heildaralbúmsins.

Þar sem við notumst að mestu við náttúrulega ljósgjafa er gott að hafa gluggabirtu enda spilar ljósið mikinn þátt í hvernig myndirnar koma út. Kertaljós og minni gluggabirta gefa oft sjarmerandi og rómantíska stemningu meðan stórir gluggar gefa mikið og fallegt ljós. Hvort um sig er afar fallegt en gefur gjörólíka útkomu.

Ef gist er á hóteli í lok dags er afar líklegt að herbergið henti í undirbúning og tilvalið að annað ykkar hafi sig til þar. Eins er hægt að leigja auka hótelherbergi undir slíkt.

SNJALLTÆKJALAUS ATHÖFN

Til þess að sýna sem best stemningu og tilfinningar á mynd, langar okkur að mæla með því að þið biðlið til gesta að sleppa sjálf myndatökum við athöfnina.

Okkur langar að sýna andlit gestanna ykkar en góð mynd getur auðveldlega misst gildi sitt ef sími eða jafnvel spjaldtölva hylur andlitið.

Gestirnir ykkar virða það glöð að þið hafið ráðið fagmenn til að skrásetja athöfnina og þá geta gestir einbeitt sér að því að vera bara á staðnum og njóta stundarinnar.

MYNDATAKA

Algengast er að myndatakan fari fram utandyra. Oft er hægt að nýta umhverfið í kringum athafnarstað til myndatöku og staðir nýttir sem eru á leiðinni í veisluna.

Ef þið eigið börn er að sjálfsögðu velkomið að hafa þau með í myndatökunni og þá er best að aðili sem þekkir þau vel, sé með í för til að vera innan handar.

FAQs

TAKK FYRIR!