BRÚÐKAUPSLJÓSMYNDUN
2024
Verið velkomin í brúðkaupsleiðarvísir Blik Studio, kærar þakkir fyrir að sýna okkar verkum áhuga.
Á myndinni má sjá okkur, Kim Klöru og Daniel Þór, við elskum að starfa saman við hjónavígslur, hvort sem það er að mynda saman, vinnsla ljósmynda eða samskipti við brúðhjónin okkar.
Reynslan hefur sýnt og sannað að það mikill kostur að hafa tvo ljósmyndara á brúðkaupsdaginn. Með því móti missum við ekki af neinu teljandi augnabliki, náum fjölbreyttari sjónarhornum og erum að lokum með nákvæmari og heildstæðari sögu dagsins ykkar í formi ljósmynda. Vissulega dugar oft að hafa einn ljósmyndara, t.d. þegar gestafjöldi er ekki svo mikill. Þið skoðið hvað hentar ykkur, en það er líka sjálfsagt að aðstoða ykkur við að meta það.
Þegar við myndum daginn ykkar pössum við að láta lítið á okkur bera og reynum að falla í hópinn svo þið og gestir upplifið nærveru okkar áreynslulausa og þægilega. Nálgun okkar er vönduð og það er gott ef þið getið næstum gleymt að við séum yfir höfuð á svæðinu - það er partur af því að mynda ykkur að njóta augnabliksins.
PACKAGES
-
I.
up to: 3 hrs
ceremony & photoshoot
photos delivered: 150+
1 photographer: 160.000isk
-
II.
up to: 5 hrs
photos delivered: 250+ / 300+
1 photographer: 210.000isk
2 photographers: 300.000isk
-
III.
up to: 8 hrs
photos delivered: 300+ / 400+
1 photographer: 260.000isk
2 photographers: 360.000isk
-
IIII.
up to: 12 hrs
full day coverage, from getting ready to first dance
photos delivered: 400+ /600+
1 photographer: 370.000isk
2 photographers: 460.000isk
AFHENDING LJÓSMYNDANNA
Ljósmyndunum er að skilað á læst vefsvæði sem tilvalið er að skoða hvar sem er og deila með vinum og vandamönnum. Á vefsvæðinu er hægt að nálgast myndirnar bæði í vef- og prentupplausn. Tímarammi vinnslu eru 5-7 vikur.
SNEAK PEEK
Til að svala spennunni sendum við ykkur nokkrar myndir af hápunktum dagsins, 2-3 dögum eftir brúðkaupsdaginn.
STAÐFESTINGARGJALD
Staðfestingargjald er góð trygging bæði fyrir ykkur og okkur.
Við bókun eru greiddar 50.000 kr. af heildarverði myndatökunnar. Gjaldið er ekki endurgreiðanlegt.
FERÐAKOSTNAÐUR OG STAÐSETNINGAR
Við búum á Akranesi og er fyrstu 60 km þaðan innifaldir í verði en svo bætist ferðakostnaður við.
FUNDUR MEÐ YKKUR
Innifalið í hverjum pakka er fundur þar sem við kynnumst og förum yfir gang dagsins. Fundurinn er mikilvægur upp á að mynda tengsl enda viljum við að ykkur líður vel í kringum okkur og að þið getið verið þið sjálf. Það hefur áhrif á minninguna í kringum myndirnar og tilfinninguna sem vaknar þegar þið skoðið þær.
HVAÐ EF ÞIÐ FORFALLIST?
Lukkulega hefur slíkt aldrei komið fyrir okkur. Ef að slík staða kemur upp þá þekkjum við aðra brúðkaupsljósmyndara sem við getum leitað til.
Góð ráð frá okkur til ykkar
Á þessu stigi teljum við mikilvægt að gefa ykkur aðeins betri hugmynd að fyrirkomulagi dagsins hjá okkur, þegar þið eruð að taka ákvörðun um hvort að við sem teymi hentum ykkur sem ljósmyndarar.
Okkur er umhugað um upplifun ykkar af því að hafa myndavél á ykkur og gestina ykkar allan daginn markmiðið er að gera þá reynslu sem ánægjulegasta. Áherslan er afslappað og vinalegt andrúmsloft í gegnum allt verkið.
Undirbúningur
Til að fá sem mest úr brúðkaupsmyndunum er mikilvægt að huga að því hvar dagurinn byrjar. Undirbúningsferlið er ótrúlega mikilvægur partur af sögu dagsins. Á þeim tímapunkti er eftirvæntingin svo einlæg og allir fara í sitt fínasta púss, sérvalið fyrir þennan dag.
Þegar valin er staðsetning fyrir undirbúning er gott að vera meðvituð um heildarútlit rýmisins því það setur svip á lokaútkomu myndanna. Gott er að hafa rýmið snyrtilegt og nægilega rúmgott. Það getur orðið þröngt þegar förðun og greiðsla eru að snúast í kringum brúður, auk fjölskyldu og jafnvel vina.
Þar sem við notumst eingöngu við náttúrulega ljósgjafa er gott að hafa einhverja gluggabirtu. Ljós spilar mikinn þátt í hvernig myndirnar koma út. Kertaljós og minni gluggabirta gefa oft sjarmerandi og rómantíska stemningu meðan stórir gluggar gefa mikið og fallegt ljós. Hvort um sig er afar fallegt en gefur gjörólíka útkomu.
Ef þið gistið á hóteli í lok dags er afar líklegt að herbergið henti í undirbúning og tilvalið að annað ykkar hafi sig til þar. Eins er hægt að leigja auka hótelherbergi undir slíkt.
Myndatakan
Til að þið fáið sem mest úr myndatökunni reynum við að mynda á 2 mismunandi stöðum. Ef þið eigið börn er að sjálfsögðu velkomið að hafa þau með í myndatökunni.
Algengast er að myndatakan fari fram utandyra. Oft er hægt að nýta umhverfið í kringum athafnarstað til myndatöku og staðir nýttir sem eru á leiðinni í veisluna.
Snjalltækjalaus athöfn
Til þess að sýna sem best stemningu og tilfinningum á mynd, langar okkur að mæla með því að þið biðlið til gesta að sleppa sjálf myndatökum við athöfnina.
Okkur langar að sýna andlit gestanna ykkar en góð mynd getur auðveldlega eyðilagst og misst gildi sitt ef sími eða jafnvel spjaldtölva hylur andlitið.
Gestirnir ykkar virða það glöð að þið hafið ráðið fagmenn til að skrásetja athöfnina á ljósmyndir og þá geta gestir einbeitt sér að því að vera bara á staðnum og njóta.
Við vonum að þessi leiðarvísir svari vangaveltum ykkar í bili og vonumst sannarlega til að heyra frá ykkur aftur!
Það væri okkur sannur heiður að vera partur af einum eftirminnilegasta degi í ykkar lífi.
Kim Klara & Daniel Þór