Að baki Blik Studio standa Kim Klara og Daniel Þór.
Leiðin að Blik Studio hófst árið 2017 þegar við kynntumst í ljósmyndanáminu. Sumarið sem útskrifuðumst ákváðum við að sameinast í brúðkaupsljósmyndun. Við höfum elskað það fyrirkomulag alveg frá byrjun og hefur það vaxið og dafnað undanfarin ár. Árið 2020 fannst okkur tímabært að hýsa ástríðu okkar á ljósmyndun og þá varð Blik Studio til.
Svo eignuðumst við son okkar. Lífið með honum hefur haft jákvæð áhrif á nálgun okkar við fagið og staðfest mikilvægi þess að sjá liðin augnablik á ljósmyndum.
Stúdíóið er staðsett á Akranesi og við tökum fagnandi á móti ykkur þar en við ferðumst um allt land til að mynda augnablikin ykkar.
AUGNABLIK SEM LIFA Í LJÓSMYNDUM